Norsk loðnuskip: Síðasti túr til Íslands í næstu viku
Norsku skipin hafa tilkynnt um 18.500 tonna loðnaafla í íslensku lögsögunni
Fiskifréttir
27. janúar 2012 kl. 10:58
Norskt loðnuskip
Fiskistofan norska hefur tilkynnt að síðasti dagur fyrir norsk loðnuskip að halda til veiða í íslensku lögsögunni sé fimmtudagurinn 2. febrúar.
Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 49 þúsund tonn í efnahagslögsögu Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í efnahagslögsögu Íslands til 15. febrúar 2012 og norðan við 64°30´N.
Norsku loðnuskipin hafa nú þegar tilkynnt um 18.500 tonna afla í íslensku lögsögunni.