

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 9 milljörðum króna í janúar 2011 samanborið við 8,3 milljarða í janúar 2010. Aflaverðmæti jókst því um 669 milljónir eða 8% á milli ára.
Verðmæti uppsjávarafla nam um 3 milljörðum króna í janúar 2011, sem er um 304% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist af loðnuafla að verðmæti 2,5 milljarðar króna, en engin loðna veiddist í janúar 2010.
Aflaverðmæti botnfisks var 5,6 milljarðar og dróst saman um 20% frá janúar í fyrra þegar aflaverðmætið nam 7 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 3,2 milljarðar og dróst saman um 24% frá fyrra ári.
Aflaverðmæti ýsu nam 827 milljónum og dróst saman um 35% en verðmæti karfaaflans nam 660 milljónum, sem er 30% aukning frá janúar 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 21% milli ára var 314 milljónir í janúar 2011.
Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.