

Ís var yfir stórum hluta leitarsvæðisins í mælingunni í síðustu viku. Mynd/Birkir Bárðarson
Loðnuleiðangri fimm skipa lauk nú um helgina. Hafís náði yfir stóran hluta rannsóknasvæðis og sýnt þykir að mun minna magn mældist af loðnu en í desember síðastliðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun. Verið er að vinna úr gögnum og stofnmat liggur ekki fyrir en engu að síður er orðið ljóst að ekki verði breyting á ráðgjöf sem byggði á mælingu í desember. Sú ráðgjöf hljóðaði upp á 22.000 tonn.
Fyrirhugað er að endurtaka mælingar þegar aðstæður leyfa með tilliti til hafíss, veðurs og útbreiðslu loðnu.
Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson munu geta lagt í leiðangur með stuttum fyrirvara og í kjölfarið verður metin þörf á mögulegri aðkomu fleiri skipa.