
Vestfirðingur ársins 2008 samkvæmt vali lesenda fréttavefsins bb.is er Egill Kristjánsson, 88 ára sjómaður á Suðureyri við Súgandafjörð. „Hann er hornsteinn vestfirsks samfélags, lifandi fyrirmynd fyrir unga sjómenn, hörkutól og einstakt góðmenni“, segir í ummælum lesenda vefsins.
Á vef Landssambands smábátaeigenda segir m.a.: ,,Egill rær á bát sínum Blikanesi ÍS 51 sem er í krókaaflamarkskerfi. Aðallega stundar Egill handfæraveiðar en kippir einstaka sinnum með nokkrum línubölum. Afli Egils á sl. sumri var tæp 17 tonn, sem hann fékk í 14 róðrum eða rúmt tonn á dag. Í 8 róðrum kom Blikanesið með meira en 1,7 tonn að landi. Besti róður Egils var 12. ágúst en þá landaði hann 1.864 kg sem er ótrúlegur árangur hvernig sem á það er litið.”
Síðan segir: ,,Haustið 2005 ákvað Egill að setjast í helgan stein. Gamalt máltæki segir að tvisvar sé sá feginn sem á steininn sest. Það sannaði Egill rækilega með því að standa upp af hinum helga stein og halda á ný til sjávar á Blikanesinu.”