
Verkefnið Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, eða svokallað vorrall, hófst síðustu helgina í febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur, Ljósafell og Jón Vídalín og rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson.
Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20-500 m dýpi.
Vorrallið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu helstu fisktegunda við landið, og hitastigi sjávar. Ennfremur er safnað sýnum vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengandi efnum í sjávarfangi.
Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af reyndum skipstjórum en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti. Undanfarin tvö ár hafa einnig verið teknar færanlegar skipstjórastöðvar í útköntum fyrir norðvestan og norðaustan land.
Úrvinnsla mælinganna og aldursgreiningar fara fram í lok mars og fyrstu niðurstöður verða kynntar í apríl.
Sjá nánar togstöðvar á vef Hafrannsóknastofnunar HÉR. Þar er jafnframt hægt að fylgjast með staðsetningu rallskipanna í rauntíma.