Stjórnarformaður laxeldisfyrirtækisins Laxeyjar í Vestmannaeyjum segir nýtt hlutafé nýtast til að ljúka við fyrsta áfangann af sex í uppbyggingu stöðvarinnar. Fyrsta slátrun sé áætluð haustið 2025. Framtíðin sé björt á laxamörkuðum.
Laxey hefur lokið sex milljarða króna hlutafjárútboði með innkomu fjárfesta með mikla reynslu af fiskeldi. Blue Future Holding, sem er hluti af þýsku fjölskyldusamsteypunni EW Group, er leiðandi fjárfestir.