Berglind Einarsdóttir sem sigraði í laxaréttakeppninni Salmond á Djúpavogi hafði að leiðarljósi að fullnýta laxinn og nota hráefni úr heimabyggð. Ágústa Margrét Arnardóttir sem skipulagði hátíðina segir gesti af skemmtiferðaskipum áhugasama um laxeldið í Berufirði.
Anna Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir mjög ólíklegt að makrílgöngur verði við Ísland í sumar. Þetta kom fram í málstofu Hafrannsóknastofnunar nú í hádeginu þar sem Anna Heiða flutti erindið Má búast við makríl í sumar?