

Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið 78,5 milljarðar og jókst um 17% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 67 milljörðum.
Verðmæti þorskafla var um 37 milljarðar og jókst um 25,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13 milljörðum og dróst saman um 1,6% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam tæpum 10 milljörðum, sem er 19% aukning frá árinu 2009.
Verðmæti ufsaaflans jókst um 27% milli ára og nam liðlega 7 milljörðum á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 8 milljörðum króna í janúar til október 2010, sem er 3,7% samdráttur frá fyrra ári.
Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 22% milli ára og nam 23 milljörðum. Verðmæti síldaraflans í janúar til október nam tæpum 8 milljörðum sem er 22% samdráttur frá sama tímabili árið 2009. Verðmæti makríls nam 8 milljörðum samanborið við 4,5 milljarða fyrstu tíu mánuði ársins 2009.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar, HÉR