

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins veiddu íslensk skip veitt 77.000 tonn af kolmunna. Aflinn á sama tíma í fyrra var nokkuð meiri eða 103.500 tonn. Samdrátturinn nemur 26%. Mestur afli á þessari vertíð er fenginn að venju í lögsögu Færeyja eða rúm 61..000 tonn og í íslenskri lögsögu um 9.000 tonn. Það þýðir að rösk 80% veiddust í færeysku lögsögunni.
Aflahæsta skipið í kolmunna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var Börkur NK með 10.766 tonn. Næst kom Beitir NK með 9.681 tonn.
Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. Fjölmörg skip sem hafa verið á kolmunnaveiðunum nú í vor hafa fengið talsvert magn af makríl í veiðarfærin. Meðal annars landaði Beitir NK alls 85 tonnum af makríl þann 27. apríl sl. en í þessari veiðiferð landaði Beitir rúm 2.900 tonnum af kolmunna. Makrílafli íslenskra skipa var í aprílmánuði tæp 518 tonn.