Karri EA 26 heldur nú stöðugri til veiða úr Hrísey með nýjum síðustokkum. Sigurður Baldursson í bátasmíðafyrirtækinu Baldri Halldórssyni á Akureyri segir trillukarla bíða með endurbætur þar til strandveiðikerfið þjóni því markmiði að styðja við brothættar byggðir
„Það er litlu hægt að breyta í reglugerðum nema að ég náði að setja þarna inn breytingu varðandi eignarhaldið. Þá er miklu strangara eftirlit með því að þú sért ekki með tvo eða þrjá báta,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra.